Skilmálar
Síðast uppfært: júní 2026
Þessir skilmálar gilda um notkun á vef Dasar Merkinga og um vörur og þjónustu sem keyptar eru í gegnum hann.
Almennt
Með því að nota vefinn og leggja inn pöntun samþykkir þú þessa skilmála.
Verð og greiðsla
Öll verð eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt nema annað sé tekið fram. Greiðsla fer fram við pöntun nema samið sé um annað.
Pantanir og framleiðsla
Sérmerktar vörur eru framleiddar eftir þeim skrám og forskriftum sem viðskiptavinur leggur fram. Við berum ekki ábyrgð á villum í efni sem viðskiptavinur sendir (t.d. röngu lógói, lágri upplausn eða stafsetningu).
Afhending
Afhendingartími er áætlaður og getur breyst. Við sendum staðfestingu þegar pöntun er tilbúin.
Ábyrgð
Við ábyrgjumst að vörur okkar séu lausar við framleiðslugalla. Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits eða rangrar notkunar.
Hugverkaréttur
Viðskiptavinur ábyrgist að hafa rétt til að nota þau lógó og myndefni sem hann sendir til prentunar.
Lög og lögsaga
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum og ágreiningur heyrir undir íslenska dómstóla.